Kolviður fær reglulega spurningu um hvar plönturnar sem sjóðurinn gróðursetur fari niður. Hingað til hefur verið gróðursett á tveimur stöðum – Geitasandi á Rangárvöllum og Úlfljótsvatni – og nú í sumar er fyrirhugað að bæta í hópinn tveimur svæðum, í Reykholti í Borgarfirði og við Húsavík.
Ársfundur Kolviðar hefur vanalega verið haldinn að vorlagi. Þar sem enn ríkir töluverð óvissa um samkomur í þjóðfélaginu var ákveðið að slá fundinum á frest fram á haust og er nú stefnt að því að halda fundinn þann 26. ágúst.
Ýmis fyrirtæki í samstarfi við Kolvið (og reyndar fleiri aðilar!) hafa forvitnast um möguleika á því að fá að taka þátt í gróðursetningu. Kolviður er nú með í undirbúningi að bjóða samstarfsaðilum upp á loftslagsdag, þar sem þetta væri í boði og er stefnt að því að halda hann laugardaginn 29. ágúst. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag koma síðar.
Blue Car Rental undirritaði samning við Kolvið en samkvæmt honum geta viðskiptavinir Blue Car Rental valið að kolefnisjafna akstur sinn á bílum leigðum hjá fyrirtækinu, frá og með 1. janúar 2020.
Þorsteinn Þorsteinson, framkvæmdastjóri Blue Car Rental og Reynir Kristinsson, formaður Kolviðar undirrituðu samninginn þann 13. nóvember.
Hópbílar í Hafnarfirði hafa samið við Kolvið um að kolefnisjafna rútuakstur félagsins ásamt vinnutengdum flugferðum starfsmanna frá og með árinu 2020.
Þetta mun vera stærsti samningur sem Kolviður hefur gert við íslenskt fyrirtæki til þessa en áætlanir gera ráð fyrir að gróðursett verði um 18.600 tré árlega á rúmlega 7 hektara lands.
Pálmar Sigurðsson, skrifstofu- og umhverfisstjóri félagsins var mjög ánægður að lokinni undirskrift. „Við erum mjög meðvituð um umhverfisáhrif starfseminnar og það er einlæg stefna okkar að lágmarka þau áhrif og bæta stöðugt árangur í umhverfismálum. Við höfum ætíð gert umhverfisvernd hátt undir höfði í starfsemi okkar samanber það að árið 2003 vorum við með fyrstu fyrirtækjum landsins til að innleiða umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt umhverfisstaðlinum ISO 14001. Við erum því mjög stolt að vera einnig leiðandi í að stíga það stóra skref að kolefnisjafna akstur rútuflotans, fyrstir rútufyrirtækja“ .
Reynir Kristinsson, stjórnarformaður Kolviðs sagði mjög mikilvægt að fá fyrirtæki eins og Hópbíla í lið með Kolviði. „Við hjá Kolviði fögnum mjög þessu skrefi sem Hópbílar eru að taka í dag. Það er afar mikilvægt að stór fyrirtæki í svona rekstri sýni í verki samfélagslega ábyrgð og taki þátt í að vinna gegn þeirri vá sem losun gróðurhúsalofttegunda er. Við hlökkum mjög til þessa samstarfs við Hópbíla“.
Hópbílar hafa samhliða þessum samningi innleitt hjá sér rekstrarkerfi frá Klöppum grænum lausnum hf. sem kortleggur og safnar saman í grænt bókhald heildarnotkun félagsins á olíu, úrgangi, rafmagni og heitu og köldu vatni og reiknar út CO2 losun vegna þeirra þátta. Það kemur til með að gagnast félaginu mjög vel við að ná betri árangri í umhverfismálum.
Eignarhaldsfélagið Festi hf. og dótturfélögin N1, Krónan, Bakkans og ELKO skrifuðu nýlega undir samning við Kolvið sem felur í sér að útreiknuð losun gróðurhúsalofttegunda vegna beinna áhrifa frá rekstri Festar og dótturfyrirtækjanna verður kolefnisjöfnuð.
Samningurinn gildir fyrir tímabilið 2018 til 2019.
Rúmlega 5.000 tré koma til með að verða gróðursett til að framkvæma kolefnisbindinguna, en það jafngildir um tveimur hekturum af skóglendi árlega á þeim svæðum sem Kolviður hefur umsjón með.
Hafa fyrirtæki innan Festar áður stigið álíka græn skref. Fyrir þetta verkefni var innleidd hugbúnaðarlausn frá Klöppum grænum lausnum hf. til að kortleggja og reikna út losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi fyrirtækjanna.
Eggert Þór Kristófersson, forstjóra Festar og Reynir Kristinsson, stjórnarformaður Kolviðs, við undirritun samningsins.
Bónus hefur nú kolefnisjafnað rekstur verslana sinna fyrir árið 2018, en Bónus og Kolviður undirrituðu samning þess efnis þann 21. maí.
Í samstarfi við fyrirtækið Klappir Grænar Lausnir hf. var kolefnisspor verslana Bónus um land allt, árið 2018, reiknar, en umhverfisstjórnunarhugbúnaður Klappa hefur nú verið innleiddur í verklag Bónus, sem mun hjálpa fyrirtækinu að ná enn betri árangri í umhverfismálum. Samkvæmt útreikningum var losun Bónsu árið 2018 667 tonn CO2 og verða 6.670 tré gróðursett til að jafna það út, sem mun í framtíðinni mynda um 2 hektara skóg.
Á ársfundi Kolviðar, sem haldinn var í Hannesarholti 16. október, var undirritaður samstarfssamningur Kolviðar við Icelandair Cargo. Samningurinn gengur út á að Icelandair Cargo býður viðskiptavinum sýnum að kolefnisjafna þá losun sem hlýst af fraktflugi með viðkomandi vöru. Eftir nákvæma útreikninga á losun á CO2 vegna flutninga á varningi á öllum áætlunarleiðum Flugleiða auk fraktflugs með Icelandair Cargo varð til gjaldskrá fyrir kolefnisjafnaða flugfrakt. Icelandair Cargo mun sjá um kynningu og samninga við viðskiptavini og innheimta gjöld samkvæmt áðurnefndri gjaldskrá og standa skil á þeim til Kolviðar með uppgjöri tvisvar á ári. Aðilar þessa samnings hafa unnið að þessu í nokkurn tíma og hafa fundið fyrir vaxandi áhuga og þrýstingi frá viðskiptavinum um að bjóða upp á kolefnisjafnað fraktflug.
Reynir Kristinsson, stjórnarformaður Kolviðar og Mikael Tal Grétarsson, stjórnandi útflutningssviðs Icelandair Cargo, við undirritun í Hljóðbergi, Hannesarholti.
Nýlegar athugasemdir