Samningsbundin fyrirtæki sem hafa bundið kolefni með skógrækt hjá Kolviði.
Rekstraraðilar vinsamlegast hafa samband við [email protected] varðandi reikninga vegna kolefnisbindingar, ekki greiða gegnum heimasíðu sem er ætluð einstaklingum.
Samningsbundin fyrirtæki sem hafa bundið kolefni með skógrækt hjá Kolviði.
Rekstraraðilar vinsamlegast hafa samband við [email protected] varðandi reikninga vegna kolefnisbindingar, ekki greiða gegnum heimasíðu sem er ætluð einstaklingum.
Viðskiptavinir Kolviðar kaupa kolefnisbindingu til þess að vega upp á móti útblástursmengun ökutækja sinna eða aðkeyptra flutninga, vegna flugferða starfsmanna og gesta, flugfrakt sem og skipaflutninga með aðföng og fullunna vöru.
Kolviður gerir langtíma samstarfssamninga við fyrirtæki um kolefnisbindingu þeirra á grundvelli kolefnisbókhalds.
Sjóðurinn gerir einnig samninga við skógræktarfélög eða verktaka um gróðursetningu.
Sjóðurinn hvetur til að dregið sé úr losun gróðurhúsalofttegunda af fremsta megni, og til kolefnisbindingar í jarðvegi og gróðri fyrir þá losun sem óhjákvæmileg er.
Margþættur ávinningur felst í því að fyrirtæki geri grein fyrir kolefnisfótsporum sem starfsemi þess veldur og leiti þannig allra leiða til bættrar nýtingar og kolefnisbindi á móti þeirri losun sem óhjákvæmilega á sér stað.
Samningsaðilum um kolefnisbindingu er heimilt að nota merki Kolviðar á kynningarefni og önnur skjöl sem upplýsa viðskiptavini um samfélagslega ábyrgð samningsaðila á samningstímanum. Mikilvægt er að skýrt komi fram hvaða þættir í starfseminni er bundið kolefni á móti þannig að viðskiptavinum séu ekki send röng skilaboð því slíkt getur skaðað bæði orðspor viðkomandi fyrirtækis sem og Kolviðar.
Að samningstíma liðnum er óheimilt að nota merki Kolviðar, notkun þess þá er samningsbrot.
Fiskútflytjendum sem binda kolefni á móti losun tengdri flugfrakt á ferskum fiski samkvæmt samningi við Icelandair Cargo er heimilt að nota merki Kolviðar til þess að sýna fram á samfélagslega ábyrgð viðkomandi aðila með því að binda kolefni á móti losun tengdri viðkomandi flugfrakt frá Íslandi að lendingarstað.
Merki Kolviðar má vera á viðkomandi umbúðum, skjölum og kynningarefni til þess að undirstrika stefnu viðkomandi fyrirtækis. Skýrt skal koma fram að um kolefnisbindingu tengdri flugfrakt er að ræða og ekki má gefa annað í skyn t.d. er hægt að láta koma fram „Carbon neutralized airfreight“ undir merki Kolviðar.
Að samningstíma liðnum er óheimilt að nota merki Kolviðar, notkun þess þá er samningsbrot.
Drykkjarvöruframleiðendum með samning um kolefnisbindingu tengdri flutningi vörunnar frá Íslandi til uppskipunarhafnar er heimilt að nota merki Kolviðar á drykkjavöruumbúðir sínar (flöskur) sem og ytri umbúðir. Koma skal skýrt fram hvaða þætti í ferli vörunnar er bundið kolefni á móti.