Auk kolefnisbindingar er markmið sjóðsins að binda jarðveg og draga úr jarðvegseyðingu, einu helsta umhverfisvandamáli Íslendinga, og að auka vitund um losun gróðurhúsalofttegunda.
Nafnið Kolvið má rekja til Kolviðar á Vatni, fornkappa sem felldur var við Kolviðarhól og heygður. Nafnið er viðeigandi þar sem um þriðjungur landsins var skógivaxinn á landnámsárunum.
Hugmyndafræðin að baki Kolviði byggir á bindingu kolefnis úr andrúmsloftinu með skógrækt en tré binda kolefni (C) en leysa súrefni (O2), út í andrúmsloftið.
Kolviður | Skúlatún 6 | 105 Reykjavík